16desember

Númer 91

Ég lenti í frekar neyðarlegu atviki fyrir u.þ.b. mánuði síðan, svo neyðarlegu að ég tók ákvörðun um að það væri ekki blogghæft...en ég vil flest fyrir vini mína gera og Ásta greyið er að láta lífið úr prófalestri og ég verð að grípa til ráðstafana til að reyna að lífga hana við, eins gott að þetta virki, Njóttu Ásta mín...

Seinasti mánuður var ofsalegur hjá mér, ég vann, vann og vann, svaf lítið, borðaði minna og var þar af leiðandi ekkert í besta ástandi. Föstudaginn sem jólabjórinn kom var ég að vinna til kl  23 og var búin að lofa mér í svolitla bjórdrykkju eftir vinnu þar sem að Þresti finnst J-dagurinn stórkostlegt fyrirbæri og ekki hægt að láta hann missa af jólabjórnum.

Þröstur, Ida vinkona og einhverjir fleiri komu til mín niður í vinnu og við lögðumst á kranann. Ég var lítið sofin og hafði ekkert borðað síðan kl. 14 þegar ég andaði að mér einni rúgbrauðssneið á hlaupum og var þess vegna farin að finna vel á mér á þriðja bjór. Til að gera langa sögu örlítið styttri þá varð ég skyndifull um leið og við komum inn á barinn sem varð fyrir valinu eftir að við fórum úr vinnunni hjá mér og dró Þröst heim (með stoppi á KFC...og ég var nógu full/svöng til að vibbamaturinn þar alveg hreint ágætur).

Morguninn eftir var ég ekkert áberandi hress, sat uppí sófa soldið þunn en meira bara uppgefin að horfa á sjónvarpið þegar það rifjaðist upp fyrir mér hvað ég hafði gert um nóttina, fyrst vonaði ég að þetta hefði verið draumur en því miður var það ekki.

Í ástandinu á milli svefns og vöku fæ ég oft mjög brilliant hugmyndir og því miður getur þetta ástand varað mjög lengi hjá mér, sérstaklega ef ég er langþreytt. Þessa nótt vaknaði ég eftir nokkurra tíma svefn alveg í spreng og fékk þá stórkostlegu hugmynd að pissa ekki klósettið heldur fara fram á gang og pissa í ruslalúguna. Ég opnaði hurðina, fór fram á gang í engu nema brók og nærbol horfði á lúguna og velti því svolítið fyrir mér hvernig ég ætti að ná upp og hitta á gatið og fattaði svo að ég var ekki með lykilinn að ruslalúgunni. Ég fór inn til að ná í lykilinn og æfði mig í huganum í að hoppa upp í lúgunu svo ég gæti pissað niður 4 hæðir. Sem betur fer tók ég þá ákvörðun þegar ég var komin inn að ég væri of þreytt til að halda mér í lúgunni og það væri auðveldara að gera bara eins og vanalega og pissa í klósettið sem ég gerði og skreið aftur upp í rúm.

Það er búið að gera soldið grín að mér á heimilinu og mér finnst þetta líka smá fyndið...en mér hefði kannski ekki fundist það ef ég hefði verið berrössuð eða mætt einhvjerum nágrannanum frammi á gangi á meðan ég var í þessum pælingum.

Hera, pissar í klósett

16. desember 2008 klukkan 23:04
Hera Hansen
5 athugasemdir
23október

Númer 90

Það er víst málið að föndra sjálfur jólagjafirnar í ár.
Það er huggulegt að fá heimagerðar gjafir og oftar en ekki eru þær mun skemmtilegri og fallegri en það fjöldaframleidda...en ef einhver fær þá brilljant hugmynd að taka til í dömubindaskúffunni og prjóna handa mér svona inniskó þá er pakkinn hérmeð afþakkaður...þó að mér sé kalt á tánum.

Hera, frekar vanþakklát
23. október 2008 klukkan 07:34
Hera Hansen
8 athugasemdir
24september

Númer 89

Þegar ég flutti fyrst til Danmerkur þoldi ég ekki hvað Danir eru háðir "kalendernum" sínum. Það er allt vandlega skráð í dagbókina og kaffihúsahittingur oftar en ekki skipulagður nokkrar vikur fram í tímann...svo ekki sé nú talað um afmæli. Ég var ekki alveg að þola þetta enda mikill Íslendingur í mér og vön að taka ákvörðun á morgun um hvað ég ætla að gera í gær.

Halla systir spurði mig um daginn hvenær við ætluðum að kíkja til Hollands og knúsa fjölskylduna fallegu. Ég opnaði dagbókina mína og sá það að næsta helgi sem er ekki plönuð hjá mér er fyrsta helgin í nóvember og varð hálf sjokkeruð þegar hún sagði að við gætum "bara kíkt" einhverja af næstu helgum. Núna held ég að planið hjá mér sé að fara til Hollands um miðan nóvember...en það hefur ekkert verið skráð í dagbókina enn.

Og ég er ekki bara að plana 2 mánuði fram í tímann, ó nei! Núna er verið að huga að því hvert við eigum að fara í febrúar/mars til að komast í sumar & sól í 10 daga og flýja veturinn og slabbið. Það verður gott að komast í burtu úr vetrarviðbjóðnum ef við komumst einhverntíman að því hvert við eigum að fara og náum að kaupa ferð á skikkanlegu verði.

Hvar er sól, sumar, samba og kokteilar í febrúar/mars? ég þarf að fara að fá þetta á hreint svo ég geti skráð þetta í dagbókina mína og farið að huga að sumarfríinu.

Hera, skipulagður bauni


24. september 2008 klukkan 21:50
Hera Hansen
2 athugasemdir
04september

Númer 88

Ekta Íslendingur á tjúttinu eða bitur danskur skopmyndateiknari...?

Hera, er ekki viss
04. september 2008 klukkan 19:37
Hera Hansen
Engin athugasemd
27ágúst

Númer 87

Þeir eru ekki í nærbuxum undir skotapilsunum. Þeir eru bara með sprellann lafandi, ég fékk staðfestingu á því í kvöld.
Hera, komin með þetta á hreint
27. ágúst 2008 klukkan 02:44
Hera Hansen
Engin athugasemd
24ágúst

Númer 86

Ég fékk símtal um daginn þar sem mér var boðið að koma í óperuna 14. september. Þann dag munu krónprinsinn og kélla tilkynna hver hlýtur árleg menningarverðlaun þeirra. Fylgihlutur þeirra verðlauna er “en velgørende donation” sem er gefin sjálfboðaliðasamtökum eða verkefnum sem vinna með ýmis konar félagsmál...já eða vandamál.

Ástæðan fyrir því að mér er boðið að koma í óperuna og vera vitni að þessu öllu er að við (Ventilen) fengum þessa velgørende donation í fyrra og það er víst hefð fyrir því að þeir sem fengu pening í fyrra fá líka að vera með núna til óska þeim tilhamingju sem fá pening núna. Það var ekki leiðinlegt að sitja í óperunni í fyrra, gráta smá og fyllast stolti yfir lofræðunni sem var haldin um okkur í beinni útsendingu á DR1...og svo eru þetta líka 250 þúsund danskir peningar sem Frikki og Maja gáfu okkur, lítil sjálfboðaliðasamtök geta alveg notað svoleiðis peninga.

Það er alltaf dresscode þegar kóngafólk býður í partý og í þessu tilviki er það “kort kjole” fyrir kvk og smoking fyrir kk. Kort kjole þýðir einfaldlega, þú átt að vera í hnésíðum kjól og vera sæt. Þrátt fyrir að það hafi verið frábilegt að vera með í fyrra og að ég hafi ekkert á móti því að fara í “kampavín og snittur” ressepsjón með fína fólkinu eftir athöfnina þá ákvað ég að afþakka boðið...ég er nefninlega með svo ljóta kálfa.

Hera, með kompleksa
24. ágúst 2008 klukkan 00:31
Hera Hansen
1 athugasemd
14ágúst

Númer 85

Mikið ofboðslega er skötuhjú asnalegt orð...afhverju skötu?

Hera, bara sona að pæla
14. ágúst 2008 klukkan 00:56
Hera Hansen
Engin athugasemd
09ágúst

Númer 84

Shit hvað það er leiðinlegt að vera veikur.

Ég er með hálsbólgu, hita og kvef oní lungu, vakna alltaf í rugli með veggi hrynjandi yfir mig og hvæsandi ketti í íbúðinni hjá mér. Það er pappa-bragð af öllum mat og það eru ekki fleiri síður á netinu til að skoða. Þegar maður er farinn að leita að leikjum facebook til að spila og rífressja bloggsíður sem hefur ekki verið skrifað á svo vikum skiptir er ástandið ekki gott.

Ég þyrfti að vinna, undirbúa mig fyrir fund í Ventilen á þriðjudaginn, taka uppúr töskum eftir Íslandsferðina og taka til. Því miður er heilinn á mér orðinn að hori og útlimirnir að einhverskonar hlaupkenndu efni þannig að það er ekkert annað að gera en að flakka á milli sjónvarpsstöðva og halda áfram að spila “Swords and Sandals Gladiator” á facebook.
...og ég verð ekkert leið ef einhver bendir mér á einhverja brilljant þætti til að horfa á, á meðan þessi hroðbjóður gengur yfir.

Hera, rosa fegin að hún fær sjaldan hita
09. ágúst 2008 klukkan 13:41
Hera Hansen
3 athugasemdir
18júlí

Númer 83

Ég flýg eftir 5 og hálfan tíma ...og á bara eftir að senda eitt email, fara í sturtu, pakka og búa til nokkur pör af eyrnalokkum.

Ég reikna með að ég verði með sama íslenska númer og vanalega ...eftir að ég er búin að fara í Vodafone og fá nýtt kort, missti gamla kortið óvart oní holræsi, týpískt Heru-móment:) Endilega verið í bandi ...og ef ég er ekki komin með númerið mitt er hægt að hringja í Þröst, reikna með að vera nálægt honum u.þ.b. aaaall the time:)

Ég hlakka svo mikið til að koma heim og vera í sumarfríi að ég er búin að brosa allan hringinn í 3 daga, lífið er gott krakkar, lífið er gott.

Ég fer í fríið, ég fer í fríið, ég feeeeer í fríið...

Hera, fer í fríið
18. júlí 2008 klukkan 15:07
Hera Hansen
1 athugasemd
13júlí

Númer 82

Myndavélinni minni var stolið á Vesterbro Festival fyrir nokkrum vikum.
Planið er að kaupa nýja í fríhöfninni á föstudaginn ...hvernig myndavél á ég að fá mér?
Hera, ég bara spyr
13. júlí 2008 klukkan 02:33
Hera Hansen
4 athugasemdir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...